Tilkynning um aukaútdrátt húsbréfa til greiðslu 15.


ÍL-sjóður hefur, samkvæmt lögum um húsnæðismál nr. 44/1998,  heimild til aukaútdráttar húsbréfa. Þessi heimild er í samræmi við heimild skuldara fasteignaveðbréfa til að greiða aukaafborganir af skuldabréfum sínum eða að endurgreiða skuldina að fullu fyrir gjalddaga. Ákvæði þessa efnis hafa verið í lögum um húsnæðismál allt frá setningu laga nr. 75/1989, sem komu húsbréfakerfinu á fót.

Á þessum grundvelli hefur ÍL-sjóður látið fara fram aukaútdrátt, sem jafnframt er lokaútdráttur allra útistandandi húsbréfa. Yfirlit um hin útdregnu bréf verður að finna í Lögbirtingablaðinu 10. október n.k.

Húsbréf úr eftirtöldum flokkum voru dregin út í þessum aukadrætti og koma til greiðslu 15. desember 2025 hjá Fjársýslu ríkisins, Katrínartúni 6, 105 Reykjavík:

Heiti   Nafnverð
3. flokkur 96 IBH36-0115       34.860.000 
2. flokkur 98 IBH37-1215         9.220.000
2. flokkur 98r IBH37-1215r       97.800.086    
1. flokkur 01 IBH26-0315            686.178 
2. flokkur 01       IBH41-0315     266.921.724    



Source link

Leave a Comment